Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

...

11. febrúar 2007 klukkan 14:11

nenni ekki...
of mikið að gera...
of lítið að segja...
hætt...

Júlíana Garðarsdóttir

breytabreytabreyra:]

14. janúar 2007 klukkan 00:14
ætla að breyta síðunni alveg:] Kominn með svo mikið leið á henni...

lúna
Júlíana Garðarsdóttir

shalala

11. janúar 2007 klukkan 23:26
Heihei:]

Er maður ekki alveg kominn með nóg af veikindum? Ég held það... Þetta er alveg orðið gott sko! Þótt maður sé kannski ekki með hita er maður bara slappur og getur ekki gert neitt:( Ég treysti mér ekki að fara í skólann eða neitt! Þetta er orðið freeekar leiðinlegt verð ég að segja:/

Ég horfði á óhugnalegustu mynd í heimi í gær. Chernobyl-heart. Það er svo sorglegt að svona mörg börn þurfi að þjást fyrir eitthvað sem þau áttu enga sök á, höfðu ekki einu sinni skilning á. Allir þessir fæðingagallar af völdum geislunar frá kjarnorkuverinu; heilinn fyrir utan höfuðið, göt í hjartanu (tjernobyl hjarta), mörg vannærð, alsskonar fötlun, bæði líkamleg og andleg. Þetta er svo sorglegt.

Önnur óhugnaleg mynd, að mínu mati, er Click. Já! Mér finnst Click, sem á að vera grín eða gamanmynd óhugnaleg. Ég horfði á hana ein fyrir nokkrum vikum um miðja nótt og ég hef sjaldan verið jafn hrædd. Asnalegt að segja það en samt!

Annars gerist bara ekkert hérna. Bókstaflega ekki neitt. Dagarnir líða bara án þess að ég geri nokkurn skapaðan hlut. Ég skil eiginlega ekki hvað ég geri allan daginn... Get allavega ekki sagt neitt, nema kannski vera í tölvunni og hlusta á tónlist... Ég vona bara  að ég fari að komast í skólann aftur:]

En ég held að þetta sé bara ágætt svona í beeeli:]


fulltfulltafást

Lúna
Júlíana Garðarsdóttir

Ammmælllli:]

09. janúar 2007 klukkan 02:29
Halló^-^

Hún átti afmæli í gær, hún átti afmæli í gær, hún átti afmæli hún Daaaagrún, hún átti afmæli í gær.
Hún varð 17 ára í gær, hún varð 17 ára í gær, hún varð 17 ára hún Daaaagrún, hún varð 17 ára í gær *syngjandimeðminniósvofalleguhósthóströddu*

Til hamingju með afmælið í ábyggilega þriðja skiptið Dagrún mín:]


Hmm... Skólinn byrjaði aftur í dag. Ég fór samt ekki. Ég var að hugsa um að fara í gær og stillti vekjaraklukkuna mína. Þegar ég vaknaði var ég svo máttlaus að ég gat ekki staðið upp svo ég hélt bara áfram að sofa:] Það er svosem ekki verra en eitthvað annað. Ég held að ég ætli ekkert að fara í skólann á næstu dögum... Bara vera heima og kúra fram á hádegi^^ En ég ætla nú samt að skella mér í Egilsstaði á morgun til að hitta hana Dagrúnu mína í síðasta skiptið þangað til í maí eða eitthvað! Hún er nefnilega að fara til Noregs:( Ég á eftir að sakna hennar svooo mikið!:(
En já ég hef svosem ekkert meira að segja núna!

Þú ert hamingjulaus ef þú hættir ei neinu
þá mun hugleysið verða þín gröf
og þá tapast þér framtíð og tilveruréttur
þá tapast þér lönd þín og höf.
                  -Böðvar Guðmundsson-
                    Kveðja til hlutlauss vinar
                       1944

Fullt af ást til ykkar allra:]

Lúna
Júlíana Garðarsdóttir